Storkuberg myndast á yfirborði jarðar þegar bráðinn kvika storknar. Storkuberg skiptist í gosberg , innskotsberg eða djúpberg, allt eftir því hvar það storknar. Gosberg brýst upp á yfirborð jarðar og storknar þar. Ísland er að mestu úr basalti, basalt er algengasta gosberg jarðar. Innskotsberg eða gangberg storknar í sprungum ofarlega í jarðskorpunni, djúpberg storknar djúpt í jarðskorpunni. Þeim mun dýpra þeim mun hægari storknun og þá verður þetta djúpberg grófkornóttara.