Ef storkuberg eða setberg verður fyrir miklum áhrifum af hita eða þrýstingi breytist gerð þess og verður að myndbreyttu bergi. Upprunalegu steintegundirnar sem bergið var búið til úr hafa breyst í aðrar. Bergtegundin kalksteinn ummyndast í marmara og granít í gneis. Granít og gneis eru algengustu bergtegundirnar í Svíþjóð. Á Íslandi ummyndast berg aðallega vegna jarðhita.